Snyrtitaska - Double Zipper
ATH! Afhending á snyrtitöskum sem pantaðar eru frá 10. desember og seinna, er í fyrsta lagi Janúar 2026.
Handgerð leður snyrtitaska
Hver taska er sérsaumuð úr vönduðu leðri, handunnin á Íslandi.
Hvernig panta ég:
-
Veldu leður fyrir hverja hlið – fáanlegir eru nokkrir klassískir litir sem endast vel.
-
Veldu rennilás – Hægt er að velja um gull, silfur eða svart. Einnig er hægt að velja um nokkra liti á rennilása efninu.
-
Sérmerking (valkvætt) – Bættu við upphafsstöfum eða nafni, sem er stimplað í leðrið, til að gera töskuna enn persónulegri.
Tilvalin gjöf eða fyrir þig sjálfa(n) – einstaklega vönduð og stílhrein taska sem endist.
Hönnun
Allar VOLA töskur eru handgerðar á Íslandi og sérsniðnar fyrir hvern og einn viðskiptavin.
Töskurnar eru hannaðar með það í huga að henta sem flestum og endast.